Heilir dagar, hæfileikakeppni frístundaheimilanna og það helsta í vikunni.

 í flokknum: Vinasel

Þá er starfið okkar komið á fullt eftir hátíðarnar. Allir heilir dagar eru komnir inn á Völu fyrir þessa önn. Sá fyrsti er 8. febrúar og er skráning hafin á Vala.is.

Í þessari viku ætlum við að byrja að undirbúa okkur fyrir hæfileikakeppni frístundaheimilanna, Breiðholts got talent. Keppnin fer fram í febrúar og þá sendir hvert frístundaheimili í Breiðholti tvö atriði til þátttöku. Þessi keppni hefur verið fastur liður hjá okkur á vorönn núna í nokkur ár og hefur hún notið mikillar lukku meðal barnanna. Við ætlum að gera ýmislegt annað í vikunni og má þar helst nefna, jóga-klúbba, actionary og ukulele-klúbb.

Minnum á að við viljum fara í útiveru á hverjum degi þannig að það er mikilvægt að börnin séu klædd eftir veðri og í vatnsheldum skóm, það er líka gott að vera með auka sokka.

Nýlegar færslur
Contact Us

We're not around right now. But you can send us an email and we'll get back to you, asap.

Ólæsilegt? Breyttu textanum. captcha txt