í flokknum: Vinasel

Börn í Vinaseli settu upp leikritið Ávaxtakörfuna í síðustu viku ásamt börnum úr öðrum frístundaheimilum í Breiðholti. Sýningin fór fram í Breiðholtsskóla á fimmtudaginn. Börnin eru búin að æfa í margar vikur fyrir sýninguna og leggja mikið á sig. Það skilaði sér aldeilis því þau stóðu sig frábærlega og við erum mjög stolt af þeim. Virkilega vel heppnuð sýning.

Það hafa verið töluverð veikindi hjá okkur í starfsmannahópnum í þessari og síðustu viku þannig að við höfum ekki haft tök á því að halda uppi auglýstri dagskrá.

Það er hægt að skoða myndir úr starfinu á heimasíðunni okkar.

Framkvæmdirnar eru loksins að verða búnar og við ætlum að fagna því með að hafa foreldrakaffi í næstu viku. Foreldrakaffið verður á fimmtudaginn 14. desember klukkan 16:30 til 18:00. Það verða léttar veitingar og föndur í boði. Þið megið endilega láta okkur vita ef við eigum ekki að senda börnin heim á sínum venjulega tíma.

Skráning á heila daga um jólin er hafin. Þetta eru tveir dagar fyrir jól og þrír dagar á milli jóla og nýárs. Skráningarfrestur er til 11. des. Á heilum dögum þarf að skrá börnin sérstaklega óháð því hvort barnið er hálfan eða heilan dag. Foreldrar þurfa að greiða aukalega fyrir tíma fyrir hádegi og ef barnið á ekki pláss á þessum degi. Skráningin fer fram á Vala.is, við munum ekki taka við óskráðum börnum. Börnin eiga að vera með tvö nesti og klædd eftir veðri. Við bendum foreldrum á að það hefur komið oftar en einu sinni fyrir að foreldrar halda að þeir hafi skráð barnið en eitthvað farið úrskeiðis í ferlinu. Þannig að ef þið hafið ekki fengið staðfestingu í tölvupósti þá er barnið ekki skráð.

Minnum líka á að það er best að hringja í mætingarsímann okkar ef þið þurfið að heyra í okkur eftir hádegi: 664-4330

Við bendum á að ef það á að breyta um dagafjölda í Vinaseli þá þarf að gera það fyrir 15. hvers mánaðar.

Tölvupósturinn er lesin til klukkan 12:00.

Nýlegar færslur
Contact Us

We're not around right now. But you can send us an email and we'll get back to you, asap.

Ólæsilegt? Breyttu textanum. captcha txt