Heilir dagar-Síðasti skráningadagur á morgun.

 í flokknum: Vinasel

-Skráning fyrir heilu dagana um jólin lýkur á morgun, 10. des. Skráningin fer fram á Vala.is. Á heilum dögum þarf að skrá börnin sérstaklega óháð því hvort barnið er hálfan eða heilan dag. Foreldrar þurfa að greiða aukalega fyrir tíma fyrir hádegi og ef barnið á ekki pláss á þessum dagi. Börnin eiga að vera með tvö nesti og klædd eftir veðri. Við bendum foreldrum á að það hefur komið oftar en einu sinni fyrir að foreldrar halda að þeir hafi skráð barnið en eitthvað farið úrskeiðis í ferlinu. Þannig að ef þið hafið ekki fengið staðfestingu í tölvupósti þá er barnið ekki skráð.

-Síðasti dagurinn til að þess að skrá börnin úr lengdri viðveru er líka á morgun, 10. des.

-Hólfaskiptingin er enn þá í gangi og henni var framlengt til 22. des. Vonandi komum við vel undan jólunum þannig að henni ljúki í janúar.

Við bendum á að ef það á að breyta um dagafjölda í Vinaseli þá þarf að gera það fyrir 15. hvers mánaðar.

Tölvupósturinn er lesin fyrir til klukkan 12:00. Til að hafa samband við okkur eftir hádegi þá er best að hringja í mætingarsímann: 664-4330

Nýlegar færslur
Contact Us

We're not around right now. But you can send us an email and we'll get back to you, asap.

Ólæsilegt? Breyttu textanum. captcha txt