Íþróttir, heilir dagar og hæfileikakeppni.

 í flokknum: Vinasel

Við þökkum kærlega fyrir árið sem var að líða.

Samkvæmt okkar upplýsingum þá byrjar fótboltinn í dag en karfan og handboltinn byrja á morgun.

Heilir dagar fyrir þessa önn eru komnir inn á Vala.is. Sá fyrsti er núna 23. janúar og er síðasti dagurinn til að skrá börnin 16. janúar. Skráning fer fram á Vala.is

Nú förum við að byrja að undirbúa okkur fyrir hæfileikakeppni frístundaheimilanna í Breiðholti (Breiðholt´s got talent). Fyrirkomulagið er með þeim hætti að við höldum forkeppni með þeim börnum sem vilja vera með í keppninni og þar verða valin tvö atriði sem verða fulltrúar Vinasels í lokakeppninni. Í lokakeppninni taka öll frístundaheimilin í Breiðholti þátt og verður hún í febrúar.

Það er best að hringja í mætingarsímann okkar ef þið þurfið að heyra í okkur eftir hádegi: 664-4330

Við bendum á að ef það á að breyta um dagafjölda í Vinaseli þá þarf að gera það fyrir 15. hvers mánaðar

Nýlegar færslur
Contact Us

We're not around right now. But you can send us an email and we'll get back to you, asap.

Ólæsilegt? Breyttu textanum. captcha txt