Útinám, dominokubbar og dans 05.09.2016

 í flokknum: Álfheimar

Starfið í Álfheimum heldur sínu striki áfram þessa vikuna.

 

Í seinustu viku byggðum við domino, kaplakubba, búningar og bjuggum til flottar skutlur.

Einnig vorum með dans, skotbolta ásamt öllu flotta valinu okkar. Veðrið lék við okkur og nýttum við skólalóðina vel.

 

Í þessari viku verður dansklúbbur með skemmtilegum leikjum. Útileikir á skólalóð, skákklúbbur, Pokemon perluval og söguval.

 

Við notum mikið facebook síðu okkar til að koma upplýsingum á framfæri og myndir úr starfinu og því bið ég ykkur að sækja um aðgang í grúppuna.

https://www.facebook.com/groups/551228138402841/?fref=ts

 

 

Þrír starfsmenn eru að bætast við starfsmannahópinn okkar í dag

 

Linda María Er að koma til baka úr veikindaleyfi og er 3 daga í viku.
Natalia Boyko Er að koma til okkar aftur eftir fæðingarorlof og er alla daga.
Pétur Kári Er að koma nýr til starfa og verður 3 daga í viku.

 

Best er að hafa samband við Álfheima í gegnum tölvupóst tanja.osk.bjarnadottir@reykjavik.is  og berglind.osk.gudmundsdottir@reykjavik.is

Síminn í Álfheimum er 411-7553 , Vinnugemsar eru Tanja Ósk 695-5161 og Berglind 695-5139.

 

Ef það eru einhverjar spurningar þá um að gera hafa samband strax við okkur og við leysum úr því J

 

Í næstu viku mun Berglind forstöðumaður Álfheima fara á ráðstefnu á Akureyri og verður því ekki við á frístundaheimilinu þriðjudag og miðvikudag.

En Tanja aðstoðarforstöðumaður ásamt öðrum starfsmönnum Álfheima verða að sjálfsögðu til staðar.

 

Bestu kveðjur og fyrirfram þakkir

Starfsmenn Álfheima

Nýlegar færslur
Contact Us

We're not around right now. But you can send us an email and we'll get back to you, asap.

Ólæsilegt? Breyttu textanum. captcha txt