Vikan 29.-3. desember

 í flokknum: Álfheimar

Kæru foreldrar og forráðamenn

Nú er ný vika að hefjast hér í Álfheimum, í þessari viku verður í boði ásamt hefðbundna valinu, tafl klúbbur og bakstursklúbbur. Einnig verður startað jólaföndrinu í þessari viku þar sem að við erum að sigla inn í desembermánuð😊

Búðardagurinn sem var á fimmtudaginn í síðustu viku gekk ljómandi vel, börnin stóðu sig öll með prýði, bæði í undirbúning og þegar að það kom að því að selja og versla. Allir skemmtu sér mjög vel og hlökkum við til að halda annan slíkan dag.

Samflotið gekk mjög vel síðasta miðvikudag og mun hópur 2 fá að fara í samflot núna á miðvikudaginn 1. desember. Þau börn sem eru í hóp 2. þurfa að koma með sundföt og handklæði en flotbúnaður er til á staðnum. Þau börn sem eru hóp 2 fá miða heim.

Við viljum einnig minna á að skráning fyrir heilu dagana í desember er hafin og að seinasti dagur til að skrá er 10. desember. Ekki verður unnt að taka á móti skráningum eftir þann tíma, þá er ekki möguleiki að taka við óskráðum börnum á heilu dagana. Slóðin á skráningu á heilu dögunum er hér: https://innskraning.island.is/?id=valais&path=%2fvala-fristund-vetur

Við viljum minna á að mikilvægt sé að börnin séu með aukaföt í töskunni, ásamt regnfötum og öðrum hlýjum fatnaði.

Dagskrá vikunnar er að finna hér fyrir ofan.

Eigið góða viku sem fram undan er 😊

Góðar kveðjur,

Starfsfólk Álfheima

Nýlegar færslur
Contact Us

We're not around right now. But you can send us an email and we'll get back to you, asap.

Ólæsilegt? Breyttu textanum. captcha txt