Vikan 31. janúar til 4. febrúar

 í flokknum: Álfheimar

Kæru foreldrar/forráðamenn

Við erum enn með hólfaskiptingu í gangi hér í Álfheimum, 1. og 2. bekkur í sitthvoru hólfinu þar til við erum komin undir 50, þá sameinumst við. Í þessari viku erum við með hefðbundið val, ásamt því verðum við með allskyns handavinnu og listsköpun, einnig ætlum við að bjóða uppá legóklúbb og skák klúbb.

Við viljum minna á að mikilvægt sé að börnin séu með aukaföt í töskunni ásamt regnfötum og/eða öðrum hlýjum fatnaði, þar sem að við reynum að nýta okkur útiveruna vel á þessum tímum.

Miðvikudaginn 2. febrúar eru bólusetningardagur barna í Hólabrekkuskóla og skólinn lokar kl 11:00. En við í Álfheimum opnum hins vegar á hefðbundnum tíma kl 13:40.

Við viljum benda á að best er að senda okkur póst á alfheimar@rvkfri.is fyrir hádegi ef börnin eru veik eða í leyfi, eða eftir kl 13:00 að hringja í Álfheima símann 664-4304 til að tilkynna fjarveru.

Þau börn sem eru skráð á heilu dagana 3. og 4. febrúar þurfa að taka með sér tvö nesti, morgunnesti og hádegismat og með vatnsbrúsa. Auk þess að koma klædd eftir veðri.

Dagskrá vikunnar er að finna hér fyrir ofan.

Eigið góða viku sem fram undan er.

Kær kveðja Starfsfólk Álfheima

Nýlegar færslur
Contact Us

We're not around right now. But you can send us an email and we'll get back to you, asap.

Ólæsilegt? Breyttu textanum. captcha txt