Vikufrétt Álfheima 8.-12.nóvember

 í flokknum: Álfheimar

Kæru foreldrar og forráðamenn

Nú er ný vika að hefjast hér í Álfheimum. Í dag 8. nóvember er baráttudagur gegn einelti og því verður vinavika hér í Álfheimum. Við ætlum að bralla margt skemmtilegt saman til að byggja upp vinskap okkar allra. Það sem verður í boði í vinavikunni er að mála/teikna vináttumyndir í Listasmiðjunni, Vináttubingó, gerð vinaarmbönd, vináttubíó (þar sem verður sýnd mynd sem fær okkur til þess að huga að því hvernig við komum fram við náungann) og samvinnuleikir til að styrkja vináttu okkar. Ásamt þessu verður hefðbundið val í boði.

Þann 26. nóvember er starfsdagur bæði hjá okkur og skólanum og því engin starfsemi þann daginn.

2.bekkur er að byrja í leiklistarfjöri, nú hefur leikritið Gulleyjan verður kynnt fyrir krökkunum og þau hafa fengið að heyra lögin. Einnig hafa þau sem vilja taka þátt, skráð sig. Á næstu dögum hefjast því æfingar.

Þá erum við að búa til kynningarmyndband af frístundaheimilinu sem kemur út á þessari önn.

Við viljum minna á að mikilvægt sé að börnin séu með aukaföt í töskunni, ásamt regnfötum.

Dagskrá vikunnar er að finna hér að ofan.

Eigið góða viku sem fram undan er 😊

Góðar kveðjur,

Starfsfólk Álfheima

Nýlegar færslur
Contact Us

We're not around right now. But you can send us an email and we'll get back to you, asap.

Ólæsilegt? Breyttu textanum. captcha txt