Dagskrá Miðbergs í vetrarfríi
Dagskrá í vetrarfríi verður þriðjudaginn 21. febrúar í frístundamiðstöðinni Miðbergi og félagsmiðstöðinni Hólmaseli.
Miðberg:
Húsið opnar kl. 13.30
Boðið upp á fríar vöfflur, kaffi og kakó.
Kl. 13.30 – 14.30 Mission impossible leikur
Kl. 14.00 – 15.00 Útieldun, hægt verður að grilla brauð og sykurpúða
Kl. 15.00 – 16.00 Bingó. Eitt spjald á 200 kr. og þrjú á 500 kr.
Hólmasel:
Húsið opnar kl.13:30
Boðið uppá vöfflur, kaffi og kakó.
Opið hús í félagsmiðstöðinni þar sem verður hægt að spila borðtennis, dansa í Just Dance leiknum eða skella sér í fótboltaspilið sívinsæla.
Kl:13:30-14:30 Slímgerð, andlitsmálning og Varúlfur.
Kl.15:00-16:00 Bingó. Eitt spjald á 200 kr. og þrjú á 500 kr.
Sundlaug Breiðholts:
Frítt í sund frá kl. 13.30 – 15.00. Boðið verður upp á frítt kaffi, kakó og kleinur. Tónlist og fjör í innilauginni.
Vonumst til að sjá ykkur sem flest!