Kærleiksdagur Miðbergs
Þann 7. desember nk. verður Kærleiksdagur Miðbergs haldinn í sal Hólabrekkuskóla frá klukkan 14-16.
Happdrætti með veglegum vinningum
Kökubasar
Listaverk eftir börnin til sölu.
https://www.facebook.com/events/436448287289134/
Í ár ætlum við að styrkja sjóð sem kallast „Að grípa Ljónshjartabörn“
Ljónshjarta er stuðningsfélag fyrir ungt fólk sem misst hefur maka og börn þeirra. Makamissir í blóma lífsins er eitt mesta áfall sem hægt er að verða fyrir á lífsleiðinni. Það tekur mjög á að vera í sorg og sinna á sama tíma börnum og heimili.
Ágóði söfnunarinnar fer í sjóð sem kallast „að grípa Ljónshjartabörn“. Markmið sjóðsins er að veita Ljónshjartabörnum aðstoð sem allra fyrst eftir missi. Aðstoðin er fólgin í samtalsmeðferð og ráðgjöf frá fagaðila. Það er mikilvægt að grípa Ljónshjartabörn eftir andlát foreldris og veita þeim viðeigandi stuðning.
Stuðningsfélagið Ljónshjarta var stofnað í nóvember 2013 og hefur það meginmarkmið að að veita jafningjastuðning, fræðslu, upplýsingaöflun og samveru. Félagið skapar vettvang fyrir samverustundir og býður upp á fjölbreytta dagskrá þar sem félagsmenn og börn félagsmanna hittast og njóta þess að vera saman.