Kærleiksdagur Miðbergs

 í flokknum: Álfheimar, Bakkasel, Hraunheimar, Óflokkað, Regnboginn, Vinaheimar, Vinasel

Ágætu foreldrar og forráðamenn

Eins og flest ykkar hafa vonandi orðið vör við munu frístundaheimilin í Breiðholti standa fyrir Kærleiksdegi laugardaginn 8. desember nk., milli kl. 14 og 16 í sal Hólabrekkuskóla. Allur ágóði af deginum mun renna til uppbyggingar leiksvæðis barna í Kvennaathvarfinu.

Meðal þess sem verður á dagskrá er happdrætti, með fjölda glæsilegra vinninga. Í dag munum við hefja sölu á miðum í happdrættið. Miðinn kostar 1.000 krónur og verður til sölu á frístundaheimilunum í vikunni og síðan á Kærleiksdeginum sjálfum. Athugið að greiða þarf með peningum.

Við viljum hvetja ykkur sem flest til að kaupa miða í happdrættinu, koma til okkar í Hólabrekkuskóla á laugardaginn og styðja þarft málefni.

Með kærleikskveðju,

Starfsfólk frístundaheimilanna

Nýlegar færslur
Contact Us

We're not around right now. But you can send us an email and we'll get back to you, asap.

Ólæsilegt? Breyttu textanum. captcha txt