Miðberg sigursælt í Lífshlaupinu!
100% starfsmenn frístundamiðstöðvarinnar Miðbergs hafa undanfarin ár tekið þátt í Lífshlaupinu. Myndast hefur góð stemmning í starfsmannahópnum og hefur hópurinn verið duglegur að fara saman í badminton, blak og göngutúra saman og síðan höfum við verið dugleg að mæta í ræktina og vel hefur verið tekið á því. Hægt og rólega hefur okkur tekist að fá allan starfsmannahópinn með okkur og í ár náðum við okkar besta árangi, efsta sætið yfir flestar mínutur og annað sætið yfir flesta daga í okkar flokki (vinnustaðakeppni 10 – 29 starfsmenn).
#heilsueflandibreiðholt #lifshlaupið
Nýlegar færslur